14.04.2011 12:44

Fræðslukvöld Sörla



Glóblesa og Hrafnhildur, ég og Stilling að kynna smelluþjálfun fyrir hesta (Ljósm. Dalli).

Kynning á Beisli án Méla og smelluþjálfun fyrir hesta fór fram í reiðhöll Sörla miðvikudagskvöldið 13. apríl. Fræðslunefnd Sörla hafði boðið mér að koma fyrr í vetur til að vera með fræðslukvöld sem mér þótti mikill heiður. Sörlamenn voru líka svo frábærir sækja hrossin sem áttu að taka þátt sem ég var afar þakklát fyrir og fær hann Styrmir sérstakar þakkir fyrir að standa í þessu öllu fyrir okkur! 

Um 30-40 manns mættu á kynninguna sem mér fannst mjög góð mæting. Áhorfendur voru sannarlega yndislegir í viðmóti alla kynninguna sem gerði allt svo frábært og var partur af því hvað allt gekk í raun vel.

Ljósmyndarinn góðkunni hann Dagur Brynjólfsson, betur þekktur sem Dalli mætti á seinni kynninguna og tók nokkrar myndir. Hann var svo elskulegur að gefa mér myndirnar sem eru líka svona fínar.

Heimasíða Dalla: www.dalli.is




Hrafnhildur og Glóblesa með Beisli án Méla (Ljósm. Bjarki G.)

Fyrst var kynning á Beisli án Méla sem var ágæt þó margt hefði mátt betur fara því ég varð skyndilega eitthvað svo stressuð. Held þó að enginn hafi tekið eftir því nema ég en æfingin skapar meistarann ekki satt!

Glóblesa og Hrafnhildur stóðu sig alveg eins og hetjur en þær stöllur komu virkilega vel fyrir og sýndu vel hvernig hægt er að ríða hestum í söfnun á tölti með beislinu. Þær voru svo glæsilegar saman að á einu augnabliki datt ég aðeins út til að fylgjast með þeim!

Sörlamaður lagði lið
Einnig kom Atli Rúnar Sörlamaður, á hryssunni sinni sem hafði verið rosalega erfið með mél, prjónaði gjarna, taumstíf og reif í taum. Það hafði verið mjög erfitt að stöðva hana áður, var ómöguleg í samreið. Um leið og hann setti Beisli án Méla á hryssuna snarbreyttist hún til hins betra og varð í raun að nýjum hesti.

Hún er töluvert stíf enn eftir áralanga baráttu gegn mélunum sem hentuðu henni ekki en það er ótrúlegt að sjá breytinguna á hryssunni eftir 2 vikur með Beisli án Méla, stöðvar um leið og lætur ljúflega að stjórn.

Atli segir að samband þeirra sé allt annað en áður var og vildi hann fá að leggja mér lið þakklætisskyni sem var sannarlega vel þegið og á parið hinar bestu þakkir skildar fyrir sitt frábæra framlag.





Stilling kom vel fyrir enda var gerð smá tilraun á henni fyrir kvöldið en ólífuolía var sett í faxið og taglið sem kom bráðvel út! Ódýr leið til að gera hestinn fínan (Ljósm. Dalli).

Eftir kynninguna á beislinu var tekið stutt hlé þar sem boðið var uppá léttar veitingar í boði Sörla. 

Eftir hlé var smelluþjálfun fyrir hesta kynnt af mér og Hrafnhildi og notuðum við Glóblesu og Stillingu til að sýna hvernig aðferðin virkar. Smáradæturnar stóðu sig báðar með mestu prýði og gekk kynningin vel.





Ég að tala um fyrsta grunnþátt smelluþjálfunar, að snerta - en Stilling hélt að ég væri að biðja hana um að brosa sem vakti kátínu meðal gesta (Ljósm. Dalli).

Grunnþættir smelluþjálfunar sýndir
Sýndir voru grunþættir smelluþjálfunar - snerta, bakka og lækka höfuðið - og hvernig hægt er að hagnýta sér það fyrir utan að nota það til að kenna hestinum smelluþjálfun.

T.d. eins og að koma, þ.e. láta hestana skilja að þegar þeir snerta hnefa manns eða einhvern hlut fá þeir smellt sem er ótrúlega handhægt ef maður þarf að ná styggum hestum út í gerði eða haga.

Stilling er t.d. þannig að hún kemur þegar nafnið hennar er kallað en það tengdi hún saman við að koma og snerta - en núna þarf hún bara að heyra nafnið sem er mjög gaman. Gat t.d. kallað í hana um daginn þegar hún rauk frá mér og hún kom til baka (sjá eldra blogg) sem er smelluþjálfun að þakka.





Eitthvað verið að grínast! (Ljósm. Dalli)

Seinni kynningin heppnaðist mun betur en sú fyrri þar sem maður var orðinn laus við stressið og farinn að skemmta sér með áhorfendum. Stilling var teymd inn með band um hálsinn og lét ég hana gera spænska sporið sem vakti mikla lukku.





Vinkonurnar Glóblesa og Hrafnhildur (Ljósm. Dalli).

Hrafnhildur sýndi stuttlega hvernig smelluþjálfun virkar í reið og vakti það kátínu þegar Glóblesa snarnegldi niður við að heyra smellt - en smellan þýðir: ,,Já þetta var rétt hjá þér á þessu augnabliki og þú færð verðlaun''.

Einnig sýndi hún trix sem hún kenndi Glóblesu en það er að hrista höfuðið sem var líka skemmtilegt.





Stilling mín og ég eitthvað að útskýra (Ljósm. Dalli).

Smá ringlun hjá systrunum!
Hryssurnar voru reyndar orðnar hálf ringlaðar í lokin þar sem við Hrafnhildur smelltum hryssunar sitt á hvað og voru þær hættar að skilja af hverju verið væri að smella en þær fengu ekki alltaf verðlaun - en smelluþjálfun virkar þannig, smá verðlaun koma alltaf eftir hvern smell. Þannig að þær fóru að sýna af sér smá ókurteisi í undrun sinni sem er atriði sem fylgir ekki smelluþjálfun.

Smelluþjálfaðir hestar eru nefnilega kurteisustu hestar sem fyrirfinnast þar sem þeir vita að verðlaun koma aldrei nema smellan heyrist. Er alveg hreint frábært kerfi í kringum fóður. Veit af þessu fyrir næstu kynningu en ég hef aldrei notað tvo hesta í svona kennslu áður og verður maður að gæta þess fara ekki að ringla þá í því sem þeir hafa lært.





Stilling á hringnum (Ljósm. Bjarki G.).

Stilling var hringteymd stuttlega á feti og brokki með band um hálsinn. Það var henni kennt fyrr í vetur hjálp smelluþjálfunar og var hún fljót að læra það.

Maður getur notað smelluþjálfun til að hjálpa sér að kenna hesti hvað sem er, bæði hagnýta hluti og sem skemmtun. Maður notar aðferðina til að segja hestinum nákvæmlega hvaða hegðun það er sem maður vill sjá hjá honum.

Opnuð verður vefsíða um páskana um smelluþjálfun þannig að þeir sem hafa áhuga á að kynna sér aðferðina geta fræðst um hana bráðlega.





Ég og Stilling (Ljósm. Dalli).

Ég var almennt mjög ánægð með kynninguna þrátt fyrir að sumt hefði nú kannski ekki heppnast alveg 100% - en allt gekk vel í heildina litið og vona ég að áhorfendur hafi haft gaman að.

Ég er afar þakklát Sörlamönnum fyrir þetta boð og vil ég senda sérstakar þakkir til fræðslunefndar Sörla fyrir alla þeirra aðstoð og þeirra elskulega viðmót.

Einnig var aðstoð Hrafnhildar og Glóblesu hreint ómetanleg, þetta hefði ekki tekist svona vel án þeirra og er ég innilega þakklát fyrir þeirra framlag. 

Stilling mín stóð sig einnig vel og getum við sagt að hún hafi fengið margar ''smellur'' fyrir sitt framlag!

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 29
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 153125
Samtals gestir: 48171
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:51:58