04.09.2011 01:16
Ný vefsíða
Verið að yfirgefa gamla bloggsvæðið...
(ath er lokuð í amk. 2 daga núna út af breytingum á léni)
Með bestu kveðjum frá Hólum,
23.08.2011 15:25
Stilling - síðasti spretturinn
Stilling fyrir utan reiðhöllina á Gaddsstaðaflötum eftir byggingardóminn.
Stilling fór í byggingardóm þann 17. ágúst síðastliðinn og hlaut mjög ásættanlegar niðurstöður.
Hún lækkaði nú heldur frá byggingarmatinu sem hún fékk í janúar hjá Kristni Hugasyni en ein tala hélt sér og það var að mínu mati besta talan svo maður gat farið ánægður heim.
Byggingardómur Stillingar frá Bjarnastaðahlíð varð eftirfarandi:
Höfuð: 8,5
Háls/herðar/bógar: 9,0
Bak og lend: 7,5
Samræmi: 8,0
Fótagerð: 7,0
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,5
Prúðleiki: 8,0
Aðaleinkunn: 8,14
Stilling hress eftir dóminn á Hellu.
Fór aðeins í byggingardóm
Ég er bara mjög sátt við þennan sköpulagsdóm, að eiga hryssu með 9,0 fyrir háls og 1. verðlaun fyrir byggingu. Það hlýtur að vera ágæt byrjun á hryssukosti í ræktun.
Ástæða þess að Stilling fór aðeins í byggingardóm er vegna þess að hún er klárhryssa sem þýðir að hæfileikaeinkunnin hefði ekki verið upp á marga fiska þar sem hún hefði sennilega verið að fá 8,0 fyrir flest nema brokk sem að líkindum hefði hlotið 7,5.
Við vorum að vona að skeið væri í hryssunni en það reyndist óttalegt teskeið og því ákvað ég að draga hana frá hæfileikadómi því ég vil ekki sjá lága aðaleinkunn hæfileika á þessari fallegu hryssu. Frekar að eiga gott myndband og ljósmyndir af henni í staðinn.
Karma...
Stilling lækkaði nú heldur fyrir fótagerð, fékk 8,0 í mati í janúar með möguleika á hækkun í 8,5 en það sem gerðist þennan morgun var að fröken Stilling vaknaði eitthvað stúrin og voru fæturnir á henni mjög votir. Hún var nýkomin úr langri hestaferð og greinilega enn eitthvað að jafna sig þó fæturnir hefðu verið fínir fram að þessum ágæta degi.
Kenning mín er að alvondur alheimurinn hafi látið mig bíta í það súra fyrir hugleiðinguna sem ég skrifaði um mat á fótagerð hér um árið - en mín kenning er að hross sem eru að dæmast yfir 8,0 fyrir fótagerð (sverari fætur, Stilling í þeim flokki) séu einmitt hross sem sígur frekar á og þola í raun minna álag til lengri tíma en hross sem hafa granna fótagerð sem dæmast lægra (það er minna pláss fyrir vatn í grönnum fótum - arabíski gæðingurinn ræktaður markvisst með granna fætur, þetta þarf að skoða hérlendis).
Ég fékk greinilega ekki að vera með neinar grillur eftir þennan pistil og skellti himnaguðinn eldingu niður í lappirnar á hryssunni nóttina fyrir stóra daginn svo allt yrði satt og rétt. Spurning að fara að snúa sér bara að þeim í neðra heheh.
Ingólfur og Matti að grínast með Stillingu en þeir eru báðir sammála um að geðslagið í hryssunni sé með því betra og þess vegna ákvað Ingólfur að knúsa hana smá eftir dóminn.
Hressir félagar við stjórnvölinn
Matthías Leó, tamningamaður á Kjartansstöðum sýndi Stillingu mjög vel og honum til aðstoðar var Ingólfur 'bóndi' á Kjartansstöðum og gekk allt ljómandi vel hjá þeim félögum og eiga þeir þakkir skildar fyrir.
Þórketill frá Kjartansstöðum
Haldið undir hest
Ég hélt Stillingu þann 3. ágúst undir hest að nafni Þórketill frá Kjartansstöðum, háættaður foli undan Töfra frá Kjartansstöðum og Þotu frá Hólum, 1. verðl. hryssa með 8,40 í hæfileika, dóttir heiðursverðlaunahrossanna Þráar frá Hólum og Kolfinns Kjarnholtum.
Ég var búin að ákveða að halda merinni og ætlaði að halda henni undir hann Tývar minn en það breyttist sökum aðstæðna.
Ekki svo ósvipaður föður sínum Töfra.
Matti var svo naskur að finna á sér að merin væri að ganga þótt hún hefði aldrei um sína ævi sýnt slíka tilburði af sér (ég var farin að halda að eitthvað væri að) svo við lofuðum henni að hitta hann Þórketil sem var á húsi - og viti menn, hryssan var heldur betur að ganga og tók ég ákvörðun um að nota Þórketil til að missa ekki af henni þar sem Tývar var vant við látinn á sínu túni og má merin varla gras sjá til að fitna.
Henni var því haldið undir þennan efnilega hest og gaman verður að fylgjast með honum þróast. Hann er aðeins fárra mánaða taminn því hann slasaðist illa á hóf í fyrra og var úr leik þangað til í vetur. Svo er bara spurning hvort hryssan sé fylfull.
Matti að prófa Stillingu með mélin fyrr í sumar, reið henni sitt á hvað með Beisli án Méla og mél og tókst það mjög vel.
Í þjálfun á Kjartansstöðum
Matti þjálfaði hryssuna fyrir mig í sumar og gerði það mjög vel. Einnig var hryssan alltaf mjög vel til höfð hjá honum og gaman var að sjá hversu hænd hún var að þessum nýja þjálfara sínum þó hún hafi alltaf verið mjög glöð að sjá þá gömlu þegar hún kom í heimsókn!
Mjög góð þjálfun og hreint frábært þjónusta, mæli sannarlega með þessum flinka reiðmanni ef einhverjum vantar góða tamningu eða þjálfun á sín hross (hendi bara inn auglýsingu að honum óforspurðum hér! S: 865-1756).
''Stilling - Síðasti spretturinn!''
Eftir byggingardóminn skellti Matti sér á bak og Ingólfur tók upp myndband af honum á hryssunni. Við fylgdum honum svo heim á bílnum og þá tók Ingólfur aftur upp vélina og kallaði ''Stilling! Síðasti spretturinn!''. Ég hló svo mikið að ég keyrði næstum út af!
En hér er Stilling og síðasti spretturinn og hér er henni riðið með mél. Ég fann einn ''taumléttasta'' knapa landsins á hryssuna svo ég hafði ekki miklar áhyggjur af henni, ótrúlega létt taumhönd hjá honum Matta.
Er mjög ánægð með hans vinnu og líka hvað hann var jákvæður með hrossið, sinnti henni mjög vel.
Síðasti spretturinn með Beisli án Méla
Það hefur ríkt smá sorg hjá mér yfir þessu öllu saman því maður er auðvitað að missa reiðhestinn sinn þegar maður ákveður að fara með hryssuna í ræktun. Maður missir auðvitað ekki kæran vin, en samt verður þetta svolítið öðruvísi.
Á léttu tölti. Ljósmyndir: Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir.
Ég eignaðist Stillingu veturgamla, frumtamdi hana fjögra vetra og gangsetti með méllausa beislið. Hún hrekkti aldrei hnakkinn og var alltaf hin blíðasta.
Á móti vindi.
Stilling hefur einstakt geðslag sem allir hæla sem fá að kynnast henni og hefur því nafnabreyting mín úr nafninu Von yfir í Stilling þegar hún var veturgömul verið réttnefni.
Von er þó líka réttnefni í mínum huga og gaman verður að sjá afsprengi hennar í framtíðinni og stefni ég á að halda henni sem mest undir hesta út af Ternu.
Tvær vinkonur.
Ég vona að ég fái að upplifa slíkar stundir á ný í gegnum afkvæmi hennar síðar á ævinni.
En nú er reiðhestsferli Stillingar lokið í bili og hefur hún lagt skeifurnar á hilluna ef svo má segja og við taka ný ævintýri.
Linda Karen
16.07.2011 00:09
Ræktunarafrekin heimsótt
Ég, ásamt Funa mínum jr. og Eldeyju minni sem gat ekki annað en brosað!
Ljósmyndir: Hrafnhildur Helga.
Svo fór hryssan fljótt að sýna að hún væri fullfær í allan sjó hvað varðar sitt framtíðarstarf. Nokkuð fyndið var þegar hún fann myndavélatöskuna mína og tók hana úr vasa mínum og henti henni upp í loft! Hún er þó ekki ágeng eða leiðinleg heldur bara ógurlega forvitin og þykir mjög gott að fá klórið sitt. Ég hoppaði svo og lagðist yfir bakið á henni og lá þar stuttlega og þótti henni ekkert um þau ólæti kerlu sinnar.
Ég og Eldey 2 vetra, í haganum á Kjartansstöðum. Eigandinn eins og umrenningur á myndum sem fyrr...
Ég hef hugsað henni stað sem sérlegt smelluþjálfunardýr þar sem hún er sérlega mannelsk og hefur sýnt að hún er afar fljót að læra.
Mig langar að kynna smelluþjálfunina betur með ítarlegri og skemmtilegri sýningum og held ég að ég hafi undir höndum hryssu sem virðist fædd í það hlutverk.
Þetta var betra...
Það er stundum mjög skrýtið, en mér finnst stundum eins og hún sé komin hingað með ákveðið hlutverk sem hún virðist vera mjög tilbúin að gegna. Hvort sem það er að veita birtu og stuðning eins og dýrin okkar gera - vera þessi einstaka ljóstíra í lífi mínu líkt og Funi heitinn var, eða gera af sér aðrar grillur með einu heilu löppina verður tíminn að leiða í ljós.
Funi litli orðinn veturgamall.
Funi litli er að þroskast vel. Hann er með fallega frambyggingu og er bara heldur fríður drengurinn. Hann er einstaklega ljúfur og elskulegur karakter, hefur fallega og afar heilandi nærveru. Það verður gaman að fylgjast með honum stækka og þroskast, en mér þykir hann efnilegur miðað við það sem ég hef séð af honum.
Sóti, faðir hans verður að vonum sýndur í haust og verður gaman að fylgjast með því. Ég lét gelda Funa í vor og læt draum minn um að eignast eigin stóðhest á frost um sinn.
Funi er einstaklega blíðlyndur hestur.
Þegar ég vaknaði þekkti ég ekki þennan hest - en eftir daginn í dag held ég að þetta sé Funi litli þegar hann verður fullvaxta enda heldur líkur þeim hesti sem þarna birtist mér í draumi. Kemur í ljós.
Spólubörnin spengileg með ræktanda sínum í blíðviðrinu. Takið eftir svipnum á Eldeyju í gríni, hún virðist alltaf hafa svo miklar mætur á okkur mannfólkinu!
Mikið verður gaman að temja þessi tvö fyrstu ræktunarafsprengi mín síðar. Verður sá biðtími án vafa fljótur að líða enda langt nám enn fyrir höndum og víst nóg að dutla við.
Með sumarkveðju,
03.07.2011 21:32
Að loknu landsmóti
Mynd: visitskagafjodur.is
En þá kemur Mr. Grumpy og tekur upp þráðinn.
Ég skil ekki alveg hvað er að gerast við dóma á hrossum í töltkeppni (og reyndar dóma á tölti í öðrum flokkum á landsmótinu almennt, þetta sást einnig þar á stundum). Ég horfði á úrslit í tölti í gegnum stutt myndbrot á Hestafréttum (sem stóðu sig mjög vel í fréttaflutningi frá mótinu, alveg ljómandi gott) og varð ég nokkuð hissa á þeim tölum sem þar féllu.
Miðað við það litla myndbrot sem ég sá sýndist mér margir hestanna (þó ekki allir) vera bundnir á hægu tölti og sumir fóru stundum um á skeiði heldur en hreinu tölti á ferðinni, þ.e. stigu ekki alltaf í skástæðuna þegar hratt var farið.
Galla á tölti á að vera mjög auðveldlega hægt að sjá fyrir vana menn. Því þótti mér undarlegt að heyra himinháar tölur á sum hross sem augljóslega voru ekki alltaf á hreinu tölti. Ekki er hægt að gera þá kröfu að hrossin séu alltaf að stíga í skástæðuna, stundum fipast þau til - en þegar þetta er orðið að heilli langhlið er það líklega orðið óásættanlegt.
Að mínu mati á að taka harðar á rangri fótaröðun á tölti, bæði hvað varðar fótaröðun fets og svo skeiðs á ''töltinu''. Einnig þótti mér leitt að sjá hversu mörg hross þarna virtust hálf striðbusaleg í hreyfingum en það getur m.a. orsakast vegna vöntunar á afturfótahreyfingum sem auka mýkt og fjöðrun í hreyfingum. Mídas frá Kaldbak er einn fárra hrossa á landinu býr yfir afturfótahreyfingum og var gaman að sjá hann á hæga töltinu og hvernig hann nýtti afturpartinn í niðurhægingum vegna þeirra. Kannski eina sem er með afturfótahreyfingar hans er að hesturinn virðist tíðgengur að aftan en ekki að framan, en hann lyftir vel að aftan.
Til gamans er hér listi yfir stóðhesta sem búa yfir miklum afturfótahreyfingum (kreppa hné (inn í lend), hækil og kjúku vel) en hann er mögulega ekki tæmandi:
Töfri frá Kjartansstöðum á LM'02, hestur sem býr að miklum afturfótahreyfingum og þar með mikilli mýkt og fjöðrun. Jóhann Skúlason haggast varla í hnakknum og líður um á þessum hreyfingamikla en einstaklega fjaðrandi hesti (myndbandið er þó örlítið hraðspólað og sýnir því miður ekki rauntíma en sýnir mýkt hestsins að öðru leyti).
Þeir lesendur sem vilja skynja afturfótahreyfingar betur er bent á að horfa á hné-hreyfinguna í lendinni og færa svo augun niður eftir fætinum að hækli og kjúku. Kreppa á hné virðist lykilatriði hvað góðar afturfótahreyfingar, þ.e. það að lyfta að aftan, varðar. Afturfótahreyfingarnar valda meiri fjöðrun, hesturinn dúar mjög að aftan. (ATH: Hægspólað í endann svo hægt er að sjá hreyfingarnar mjög greinilega þar)
Vantar meiri mýkt og fjöðrun?
Ég fylgdist einnig með stóðhestunum en minna með hryssunum sökum anna. Mér þótti miður að sjá að það reyndist engin hestur í stóðhestahópnum svona í fljótu bragði búa yfir þessu einstaklega mjúka og fjaðrandi tölti sem einkennir hesta eins og Aron frá Strandarhöfði og Töfra frá Kjartansstöðum.
Hliðstætt tölt er líklega að verða algengara eða þá tölthreyfingar sem hafa enga sérstaka fjöðrun. Það voru þó auðvitað ljómandi góðir töltarar inná milli en enginn stóðhestanna hafði þessa fjaðrandi hreyfingu sem heillar mig sérstaklega.
9,5 vígið fallið?
Einnig virðist 9,5 vígið fallið. Þessi einkunn fyrir tölt var gefin á hross á kynbótabrautinni hingað og þangað að virtist. Mörg þessara hrossa áttu þessa einkunn ekki séu hreyfingar þeirra á tölti bornar saman við hreyfingar hrossa sem hlutu þessar einkunn fyrir tölt fyrir um áratug síðan.
Það verður brátt þannig að ræktendur nota varla stóðhesta nema þeir hafi 9,5 fyrir tölt, svo algeng verður þessi einkunn í framtíðinni ef ekki verður brátt spyrnt við fótum. Mér finnast of margir stirðbusar vera að fá háar einkunnir fyrir tölt - það er eins og ferð, rými og fótaburður gildi mest á meðan mýkt, rétt fótaröðun og fjöðrun gildi minna að mér þykir.
Ég held að þetta sé að gerast m.a. vegna þess að menn hafa gleymt hestum eins og Aroni og Töfra, en fjöðrunin og mýktin á gangi hjá þeim er svo stórkostleg að unun er á að líta. Þessum hestum fer fækkandi. Ég held að það hafi verið eitt hross á landsmóti með afturfótahreyfingar sem kalla má góðar (en ég sá ekki hryssurnar svo ekki er það fullnægjandi mat) en það var Mídas frá Kaldbak.
Ég held að menn átti sig ekki á því að þegar þeir teygja skalann svona hægri vinstri getur það orðið eins og þegar maður pissar í skóinn sinn, það er skammgóður vermir. Eftir 100 ár gæti hrossaræktin hafa beygt af leið ef dómskerfið er ekki harðara á kröfum sínum, þ.e. gæðin rýrna í raun ef kynbótahrossin fá ekki sem raunsannastan dóm.
Hef þessa hugleiðingu ''stutta'' að sinni.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
26.06.2011 00:02
Að beisla virkni jákvæðrar styrkingar á hegðun
Heimir á Hellu 2008. Hann hefur innbirgt mikið magn af fóðri fyrir hegðun í þjálfun en er samt sem áður afar kurteis og virðir svæði þjálfara síns.
Ljósmyndir í þessu bloggi: Hrafnhildur Helga
Hér á eftir er hluti úr hópverkefni sem ég vann á Hólum og flutti fyrir bekkinn. Hópverkefnið fjallaði um umbun og refsingu og sá ég um hlutann sem var með umbun með fóðri, en við settum verkefnið upp sem leikþátt sem var með og á móti refsingum og svo með og á móti fóðurgjöf sem umbun.
Þetta er ágætur texti og skýrir vel virkni smelluþjálfunar eða notkun á jákvæðri styrkingu með hjálp óbeinnar styrkingar á hegðun.
Verkfærataska hestamannsins
Ef við tökum upp verkfæratösku hestamannsins má finna þar 3 verkfæri sem notuð eru við þjálfun og tamningu. Þessi tól kallast neikvæð styrking á hegðun, jákvæð styrking á hegðun og refsing.
Neikvæð styrking á hegðun er það verkfæri sem mest er notað en það er þegar knapinn setur þrýsting á hestinn og tekur hann af þegar hesturinn svarar rétt, þ.e. umbunar hestinum með því að gefa honum frið. Refsing er líka notuð en hana ætti að forðast sökum vandamála með tímasetningar og veldur hún í raun aðeins skaða (sjá: Vandamálið við refsingar)
Jákvæð styrking er umbun með fóðri en hún getur verið vandasöm.
Jákvæð styrking
Verkfærið jákvæð styrking á hegðun er umbun með fóðurgjöf. Hún er minna notuð sökum vöntunar á kerfi til að halda utan um virkni hennar. Fóður er vafalaust ein sterkasta styrking á hegðun fyrir dýr en það hefur ekki gefist vel að verðlauna hross með fóðri, því fljótt geta þau orðið frek og ágeng í leit að meira góðgæti.
Ein ástæða þess er vandamál með tímasetningu, þ.e. fóðrið kemur á eftir hegðuninni og hesturinn áttar sig illa á fyrir hvað nákvæmlega var verið að verðlauna. Hesturinn veit í raun ekki af hverju eða hvenær fóðrið gæti komið aftur og tengir það fyrst og fremst við vasa þjálfarans en ekki eigin hegðun. Hesturinn reynir því ítrekað að sparka í dósavélina til að gá hvort eitthvað poppi ekki út.
Hin almenna notkun á jákvæðri styrkingu:
Dæmi um misheppnaða notkun á jákvæðri styrkingu er t.d. þegar verið er að gangsetja mjög klárgengan hest og hann stígur smá hreint tölt eftir kafla á brokktölti. Himinlifandi knapinn vill verðlauna hest sinn, stöðvar og gefur örlítinn mola.
Hesturinn myndi að líkindum telja að hann væri að fá verðlaun fyrir að stöðva, ekki fyrir að ganga á ákveðinn hátt, þ.e. ganga á hreinu tölti. Þar með færi tilgangurinn með umbuninni í raun út um þúfur og hegðunin ''hreint tölt'' styrkist ekki að marki þrátt fyrir fóðurumbun.
Óbein styrking á hegðun er brú yfir í jákvæðu styrkinguna sem leiðir til réttrar tímasetningar á umbun með fóðri.
Óbein styrking
Til að jákvæð styrking eða umbun með fóðurgjöf geti skilað árangri er nauðsynlegt að bæta við öðru verkfæri í verkfæratöskuna sem er ekki mikið notað. Kallast þetta verkfæri óbein styrking (e. secondary reinforcer). Óbein styrking á hegðun er verkfæri sem myndar brú yfir í jákvæðu styrkinguna, þ.e. með henni má tímasetja rétt og segja hestinum nákvæmlega fyrir hvaða hegðun hann fær umbun í formi fóðurs.
Hægt er að taka sama dæmi og áður nefndi, þ.e. hestur á brokktölti sýnir loksins örlítið hreint tölt og um leið er óbeina styrkingin notuð, þ.e. hljóðmerki eins og smella sem segir hestinum ,,Þetta var rétt, nú færð þú verðlaun''. Þá stöðvar hesturinn og fær örlítið fóður í verðlaun.
Óbein styrking stuðlar að skilningi
Hér skilur hesturinn hinsvegar nákvæmlega fyrir hvaða hegðun verið var að verðlauna hann fyrir, þ.e. óbeina styrkingin sér fyrir réttri tímasetningu svo fóðurumbunin nýtist sem mjög öflug styrking á hegðun.
Þetta mun leiða til þess að hesturinn sækist strax í að framkvæma hegðunina aftur og bjóða mögulega fram enn betri hegðun. Nafn á þessu kerfi er smelluþjálfun eða clickertraining og er um mjög öflugt þjálfunartæki að ræða. Þessi aðferð er eitt allra hentugasta kerfið fyrir fóður sem umbun.
Virða svæði knapans
Þegar hesturinn skilur þetta kerfi er afar mikilvægt að nota hljóðmerkið til að styrkja hegðun sem snýr að því að virða svæði knapans, eins og að víkja frá og bakka. Til að þetta kerfi gangi upp má aldrei gefa hestinum úr hendi nema þegar hann heyrir hljóðmerkið.
Með þessum hætti er hægt að gefa hestinum mikið fóður þegar það er verið að kenna honum eitthvað nýtt án þess að hann verði nokkru sinni frekur því hann veit að hann fóðrið kemur ekki nema hann heyri hljóðmerkið og virði svæði knapans.
Með þessum hætti tapast ekki leiðtogahlutverkið heldur verður þessi aðferð aðeins aukahlutur í verkfæratöskunni okkar til að ýta undir námshraða þegar við erum að kenna hestinum eitthvað nýtt.
Tilgangurinn að auka námshraða
Þegar hesturinn hefur lært það sem við ætluðum að ná fram hjá honum, eins og að stíga hreint tölt, þá er notkun umbunar með fóðri hætt enda eini tilgangurinn með henni að auka námshraða. Þá skal aðeins nota neikvæða styrkingu á hegðun nema hesturinn fari skref til baka í þjálfuninni, þá er umbunakerfið notað aftur til að örva hegðunina hafi hún ekki fests í sessi.
Fóður er öflugasta styrking á hegðun hestsins og með því að beisla virkni jákvæðrar styrkingar og nota hana samhliða neikvæðri styrkingu getum við margfaldað námshraða og komist hraðar yfir erfið verkefni með því að hraða skilningi hestsins.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
17.06.2011 21:17
Fréttir og hugleiðingar
Háskólinn á Hólum í Hjaltadal.
Nú er ég búin að vera á Hólum við gott atlæti í 3 vikur og ein vika er eftir af náminu. Hér hef ég lært margt gott um ásetu og þjálfun hrossa og hefur verið gaman að kynnast svæðinu hér og náminu. Mette Mannseth, Sölvi Sigurðsson og Þorsteinn Björnsson hafa verið að kenna og hafa þau kennt okkur ljómandi vel og eru öll mjög vingjarnleg og jákvæð í viðmóti. Við erum 19 í sumarnámi frá LbhÍ, en hluti er reyndar á 1. ári í BS. náminu.
Eldgömul mynd af Stillingu - að sjálfsögðu....!
Ég er með Stillingu hér með mér og gengur vel með hana, orðin grönn og spengileg eftir hlaupin í maí. Hrossið missti þó nær alfarið fótlyftuna eftir hlaupabúðirnaren er komið með ákaflega mikla ferð á brokki og hefur bætt sig mjög á hægu stökki sem er aldeilis frábært. En hún hefur komið sér upp orkusparandi aðferðum greinilega...!
Ég hef því verið að vinna í henni með fótaburðinn og er það allt að koma, en hún var sérstaklega skemmtileg í dag. Ég verð með hryssuna á Hólum næsta vetur og geri ráð fyrir að láta sýna hana nú í ágúst og aftur næsta vor.
,,Labbaði á sprautuna''
Ég lét gelda Funa minn í vor og hlakka mikið til að hitta hann, Heimi og Eldeyju aftur eftir námið. Hrossunum var gefið inn ormalyf um daginn og tók Ingólfur á Kjartansstöðum svo skemmtilega til orða þegar ég spurði hvernig gengið hefði að gefa hrossunum lyfið, en hann sagði að Eldey hefði nánast labbað á sprautuna og er það ágætlega lýsandi fyrir hennar karakter en hún er blíðan ein og vill allt fyrir mann gera.
Spólusonur viku gamall með stolta móður sína í bakgrunni. Mynd: Hubertine Petra.
Spóla köstuð
Spóla átti reist og spengilegt hestfolald þann 6. júní síðastliðinn undan Keim frá Kjartansstöðum og líkist hann föður sínum mjög. Óska eigendum Spólu innilega til hamingju með fallegan fola!
Spóla fer undir hinn unga Hákon frá Ragnheiðarstöðum í sumar og vona ég að hún kasti eigendum sínum skjóttri hryssu næsta vor enda er hún búin að kasta 2 rauðum hestfolöldum í röð og er það líklega komið gott!
Svipurinn á mér var líklega eitthvað í áttina að þessu reglulega í tímum á Hólum í vor eftir að hafa laumast í fréttaveituna á netinu.
Ég hef mikið verið að fylgjast með fréttum af kynbótasýningum og keppni og oft hefur komið æði súr svipur á mig í tímum þar sem ég hef verið að laumast inn á fréttasíður þegar hugurinn á að vera að einbeita sér að náminu...
Dómarar ekki að standa sig
Mér finnast dómarar vera að klúðra alvarlega málum hér í sumum tilvikum, bæði í kynbótadómum og á keppnisvellinum. Verið er að gefa hrossum 9,0 og 9,5 fyrir skeið sem eru svo áberandi á tölti að manni svíður í augun að lesa einkunnagjöfina eftir að hafa skoðað myndbönd af þeim.
Einnig hafa hross verið að fá allt að 9,5 fyrir skeið þrátt fyrir að sýna mjög lítið svif á skeiðinu sem er atriði sem vegur mjög hátt varðandi gæði skeiðsins, þ.e. að skeiðið ætti að búa yfir miklu svifi til að hljóta einkunnina 9,5.
Byggingarþætti þarf að endurmeta fyrir hæfileikadómi
Einnig þarf snarlega að taka til skoðunar að bæta við endurmati á byggingu þegar hross koma til hæfileikadóms. Það verður að teljast stórundarlegt að sjá hross sem hlotið hefur 9,0 fyrir háls, herðar og bóga mæta í braut með háls sem sokkinn er ofan í búkinn og virðist ekki eiga kommu meira en 8,0.
Setja ætti endurmat inn í byggingardóminn, þ.e. t.d. að einkunn fyrir háls, herðar og bóga og samræmi (og bak og lend þess vegna - stífni í afturparti dregur niður t.d.) sé endurmetið fyrir hæfileikadómi. Þ.e. ef hálsinn hverfur eða hesturinn samræmir sér ekki vel í reið á að lækka einkunnir fyrir þessa þætti séu einkunnir sem gefnar eru í kyrrstöðu ekki að samræmast útliti byggingarinnar í reið. Það myndi auka réttmæti þessara einkunna en aðallega væri það mikilvægast fyrir frampartseinkunn sem gildir mest innan byggingardómsins af augljósum ástæðum.
Byggingardómurinn á að þjóna hæfileikum hestsins, við skoðum ekki hestinn í kyrrstöðu í einhverri fegurðarskoðun svona almennt séð - útlit hestsins og geta í reið er aðalatriðið og á byggingardómurinn að þjóna því sjónarmiði. Endurmat verður að taka til skoðunar að mínu mati - og einnig fótagerðareinkunnina sem er nær alfarið mat á útlitslegri fegurð en ekki endingu líkt og almennt er talið (hún þarfnast óháðra rannsókna til að skoða endingu mism. fótagerðar til hlýtar til að fá slíkar niðurstöður).
Sigurvegari í tölti á Gullmótinu fer hér mikinn á yfirferðartölti skv. dómurum.
Á keppnisvellinum hafa nokkrir afar gagnrýniverðir hlutir gerst sem alfarið er dómaranna sök, ekki keppendanna. Stundum virðast dómarar ekki ''sjá'' hvort hestur sé á hreinu tölti, bindingi eða hreinu skeiði þó hinn venjulegi Jón sjái bersýnilega að einhver maðkurinn sé nú í mysunni. Það er augljós munur á tölti, bundnu tölti og skeiði og verða dómarar auðvitað að vera harðir að taka á keppendum ef þeir sýna ekki tölt í hvívetna í töltkeppni.
Reykjavíkurmeistaramót Fáks, töltkeppni.
Besta dæmið um þetta er sýning á töltstjörnunni Tuma frá Stóra-Hofi sem sigraði töltið á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks í vor og svo Gullmótið nú í vikunni þar sem hesturinn sýndi reglulega hreint skeið á yfirferð og hraðabreytingum og binding á skammhliðum og hlaut yfir 8 fyrir allar þessar sýningar, bæði forkeppni og úrslitum.
Þetta er að mínu mati gott dæmi um þau umhverfisáhrif sem dómarar leyfa sér að verða fyrir þegar um frægt og farsælt par er að ræða og dæma hrossin ekki eins og vera ber að virðist. Slíkt getur ekki talist til gæfu þó um gæðinga sé að ræða.
Ekki er við knapa og hest að sakast, ábyrgðin af þessu fellur alfarið á hendur dómara sem verða að dæma eftir dagsforminu.
Á HM á skeiði?
Tumi frá Stóra-Hofi er því kominn sem kandítat í töltið á HM á skeiði og verður það líklega að teljast nokkuð til tíðinda. Ekki er við knapa og hest að sakast, ábyrgðin af þessu fellur alfarið á hendur dómara sem verða að dæma eftir dagsforminu.
Auðvitað skal að taka göllum í sýningum einkunnarlega séð eins og hjá öllum öðrum keppendum enda er þetta sjáanlegt með hinu bera auga og á ekki að fara framhjá eins vönum mönnum og þeim er dæma stórmót sem þetta.
Líklega flokkast ég sem Mr. Grumpy þetta vorið...!
Er verið að slaka á tökunum?
Það er eins og dómarar séu að slaka eitthvað á tökunum á skilgreiningum gangtegundanna við dómstörf. Skeið er tvítakta gangtegund með svifi þar sem tveir hliðstæðir fætur snerta jörðu. Í vor fengu nokkur hross 9,0 - 9,5 fyrir skeið þar sem tveir skástæðir fætur snertu jörðu og gangtegundin var sviflaus. Það er skilgreiningin á tölti. Að ræktendur velji svo þessi hross til eflingar hins íslenska gæðings með 5 gangtegundir mun að sjálfsögðu leiða ræktendur snöggt af þeim vegi.
Dómskerfið verður að dæma gangtegundir hrossa rétt og þá fyrst og fremst eftir skilgreiningum þeirra, þ.e. viðeigandi og réttri fótaröðun. Það verður ávallt að líta til framtíðar þegar gefnar eru einkunnir uppá 9,0-10.0 því þessi hross munu væntanlega hafa hvað mest áhrif innan hrossastofnsins.
Þess vegna þarf að gefa þessar einkunnir aðeins þeim hrossum sem eiga þær virkilega skilið líkt og gefur að skilja - og þá sérstaklega einkunnirnar 9,5 og 10.0.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
29.04.2011 23:53
Löng dagskrá framundan
Stilling farin í þjálfunarhringinn á Jaðri.
Stilling var send austur á Jaðar í dag þar sem hún mun fara í hinn svokallaða þjálfunarhring á meðan ég sit sveitt yfir próflestri. Á Jaðri eru hross rekin 5-10 km, 5-6 skipti í viku yfir mishæðótt land og mun Stilling væntanlega koma til með að hlaupa yfir 100 km á meðan ég er í prófum þannig að við verðum ansi móðar báðar tvær í maímánuði.
Endurhæfing heppnaðist
Susi Braun kom og hnykkti hryssuna í gær og sagði að hún væri hætt að beita sér rangt í hálsi og nú þyrfti bara að auka vöðvastyrk í hálsvöðvunum vinstra megin, hún væri mjög jöfn í skrokknum og allt önnur frá því síðast. Óskaði mér til hamingju með mjög vel heppnaða endurhæfingu og sagði mér að henni þætti gaman þegar eigendurnir fylgdu hnykkingunni svona vel eftir. Hryssan hefur tekið miklum framförum eftir hnykkinguna og er bara allt önnur, sérstaklega hvað varðar að bera sig rétt. Susi vann sannarlega frábært starf fyrir okkur Stillingu enda hefði þetta vandamál ekki verið hægt að laga með þjálfun.
Hólar í sumarskrúða.
Hólar í júní
Þann 30. maí nk. fer ég í 3 vikna sumarnám að Hólum sem er hluti af náminu í hestafræðinni og mun ég taka Stillingu með mér norður. Held að það verði stórkostleg upplifun að þjálfa hana í Hjaltadalnum enda einstaklega fallegur staður, ekki síst að sumarlagi.
Vinkonur mínar úr náminu taka einnig sín hross norður svo það verður vafalaust glatt á hjalla hjá okkur á gæðingunum á kvöldin eftir drjúgan skóladag. Þá kemur sér vel að kvöldin verða orðin björt sem dagur.
Gæðingurinn Tývar frá Kjartansstöðum fær Stillingu í heimsókn á Ásmundarstaði í júlí.
Tývar í júlí
Eftir landsmót fer Stilling svo undir gæðinginn Tývar frá Kjartansstöðum og tel ég að ég verði ekki svikin af því afkvæmi. Ég hlakka mikið næsta vors enda Tývar í mjög miklu uppáhaldi og hryssan ekki síður.
Það kom til mín fyrir nokkru að það yrði dökkjarpur hestur í þetta skiptið - sjáum hvað setur...
Hjá hestinum verður hún í tvær vikur (verður sett af stað ef hún er ekki að ganga á þessum tíma) og síðan verður hún þjálfuð fram að síðsumarsýningu á Hellu sem verður 15. ágúst nk. Nægur tími er því til stefnu fyrir hálsvöðvanna að ná fullum styrk fyrir sýninguna sem verður sannarlega hápunktur sumarsins.
Tývar frá Kjartansstöðum, ein af skærustu stjörnum landsmóts 1998.
Minni á heimasíðu Tývars, www.tyvar.net fyrir þá sem vilja kynna sér þennan mikla höfðingja en hann tekur á móti hryssum á Suðurlandi í sumar.
Áhugasamir geta fengið nánari uppl. með vefpósti, tyvar@beisli.net eða í síma 869-3902.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
14.04.2011 12:44
Fræðslukvöld Sörla
Glóblesa og Hrafnhildur, ég og Stilling að kynna smelluþjálfun fyrir hesta (Ljósm. Dalli).
Kynning á Beisli án Méla og smelluþjálfun fyrir hesta fór fram í reiðhöll Sörla miðvikudagskvöldið 13. apríl. Fræðslunefnd Sörla hafði boðið mér að koma fyrr í vetur til að vera með fræðslukvöld sem mér þótti mikill heiður. Sörlamenn voru líka svo frábærir sækja hrossin sem áttu að taka þátt sem ég var afar þakklát fyrir og fær hann Styrmir sérstakar þakkir fyrir að standa í þessu öllu fyrir okkur!
Um 30-40 manns mættu á kynninguna sem mér fannst mjög góð mæting. Áhorfendur voru sannarlega yndislegir í viðmóti alla kynninguna sem gerði allt svo frábært og var partur af því hvað allt gekk í raun vel.
Ljósmyndarinn góðkunni hann Dagur Brynjólfsson, betur þekktur sem Dalli mætti á seinni kynninguna og tók nokkrar myndir. Hann var svo elskulegur að gefa mér myndirnar sem eru líka svona fínar.
Heimasíða Dalla: www.dalli.is
Hrafnhildur og Glóblesa með Beisli án Méla (Ljósm. Bjarki G.)
Fyrst var kynning á Beisli án Méla sem var ágæt þó margt hefði mátt betur fara því ég varð skyndilega eitthvað svo stressuð. Held þó að enginn hafi tekið eftir því nema ég en æfingin skapar meistarann ekki satt!
Glóblesa og Hrafnhildur stóðu sig alveg eins og hetjur en þær stöllur komu virkilega vel fyrir og sýndu vel hvernig hægt er að ríða hestum í söfnun á tölti með beislinu. Þær voru svo glæsilegar saman að á einu augnabliki datt ég aðeins út til að fylgjast með þeim!
Sörlamaður lagði lið
Einnig kom Atli Rúnar Sörlamaður, á hryssunni sinni sem hafði verið rosalega erfið með mél, prjónaði gjarna, taumstíf og reif í taum. Það hafði verið mjög erfitt að stöðva hana áður, var ómöguleg í samreið. Um leið og hann setti Beisli án Méla á hryssuna snarbreyttist hún til hins betra og varð í raun að nýjum hesti.
Hún er töluvert stíf enn eftir áralanga baráttu gegn mélunum sem hentuðu henni ekki en það er ótrúlegt að sjá breytinguna á hryssunni eftir 2 vikur með Beisli án Méla, stöðvar um leið og lætur ljúflega að stjórn.
Atli segir að samband þeirra sé allt annað en áður var og vildi hann fá að leggja mér lið þakklætisskyni sem var sannarlega vel þegið og á parið hinar bestu þakkir skildar fyrir sitt frábæra framlag.
Stilling kom vel fyrir enda var gerð smá tilraun á henni fyrir kvöldið en ólífuolía var sett í faxið og taglið sem kom bráðvel út! Ódýr leið til að gera hestinn fínan (Ljósm. Dalli).
Eftir kynninguna á beislinu var tekið stutt hlé þar sem boðið var uppá léttar veitingar í boði Sörla.
Eftir hlé var smelluþjálfun fyrir hesta kynnt af mér og Hrafnhildi og notuðum við Glóblesu og Stillingu til að sýna hvernig aðferðin virkar. Smáradæturnar stóðu sig báðar með mestu prýði og gekk kynningin vel.
Ég að tala um fyrsta grunnþátt smelluþjálfunar, að snerta - en Stilling hélt að ég væri að biðja hana um að brosa sem vakti kátínu meðal gesta (Ljósm. Dalli).
Grunnþættir smelluþjálfunar sýndir
Sýndir voru grunþættir smelluþjálfunar - snerta, bakka og lækka höfuðið - og hvernig hægt er að hagnýta sér það fyrir utan að nota það til að kenna hestinum smelluþjálfun.
T.d. eins og að koma, þ.e. láta hestana skilja að þegar þeir snerta hnefa manns eða einhvern hlut fá þeir smellt sem er ótrúlega handhægt ef maður þarf að ná styggum hestum út í gerði eða haga.
Stilling er t.d. þannig að hún kemur þegar nafnið hennar er kallað en það tengdi hún saman við að koma og snerta - en núna þarf hún bara að heyra nafnið sem er mjög gaman. Gat t.d. kallað í hana um daginn þegar hún rauk frá mér og hún kom til baka (sjá eldra blogg) sem er smelluþjálfun að þakka.
Eitthvað verið að grínast! (Ljósm. Dalli)
Seinni kynningin heppnaðist mun betur en sú fyrri þar sem maður var orðinn laus við stressið og farinn að skemmta sér með áhorfendum. Stilling var teymd inn með band um hálsinn og lét ég hana gera spænska sporið sem vakti mikla lukku.
Vinkonurnar Glóblesa og Hrafnhildur (Ljósm. Dalli).
Hrafnhildur sýndi stuttlega hvernig smelluþjálfun virkar í reið og vakti það kátínu þegar Glóblesa snarnegldi niður við að heyra smellt - en smellan þýðir: ,,Já þetta var rétt hjá þér á þessu augnabliki og þú færð verðlaun''.
Einnig sýndi hún trix sem hún kenndi Glóblesu en það er að hrista höfuðið sem var líka skemmtilegt.
Stilling mín og ég eitthvað að útskýra (Ljósm. Dalli).
Smá ringlun hjá systrunum!
Hryssurnar voru reyndar orðnar hálf ringlaðar í lokin þar sem við Hrafnhildur smelltum hryssunar sitt á hvað og voru þær hættar að skilja af hverju verið væri að smella en þær fengu ekki alltaf verðlaun - en smelluþjálfun virkar þannig, smá verðlaun koma alltaf eftir hvern smell. Þannig að þær fóru að sýna af sér smá ókurteisi í undrun sinni sem er atriði sem fylgir ekki smelluþjálfun.
Smelluþjálfaðir hestar eru nefnilega kurteisustu hestar sem fyrirfinnast þar sem þeir vita að verðlaun koma aldrei nema smellan heyrist. Er alveg hreint frábært kerfi í kringum fóður. Veit af þessu fyrir næstu kynningu en ég hef aldrei notað tvo hesta í svona kennslu áður og verður maður að gæta þess fara ekki að ringla þá í því sem þeir hafa lært.
Stilling á hringnum (Ljósm. Bjarki G.).
Stilling var hringteymd stuttlega á feti og brokki með band um hálsinn. Það var henni kennt fyrr í vetur hjálp smelluþjálfunar og var hún fljót að læra það.
Maður getur notað smelluþjálfun til að hjálpa sér að kenna hesti hvað sem er, bæði hagnýta hluti og sem skemmtun. Maður notar aðferðina til að segja hestinum nákvæmlega hvaða hegðun það er sem maður vill sjá hjá honum.
Opnuð verður vefsíða um páskana um smelluþjálfun þannig að þeir sem hafa áhuga á að kynna sér aðferðina geta fræðst um hana bráðlega.
Ég og Stilling (Ljósm. Dalli).
Ég var almennt mjög ánægð með kynninguna þrátt fyrir að sumt hefði nú kannski ekki heppnast alveg 100% - en allt gekk vel í heildina litið og vona ég að áhorfendur hafi haft gaman að.
Ég er afar þakklát Sörlamönnum fyrir þetta boð og vil ég senda sérstakar þakkir til fræðslunefndar Sörla fyrir alla þeirra aðstoð og þeirra elskulega viðmót.
Einnig var aðstoð Hrafnhildar og Glóblesu hreint ómetanleg, þetta hefði ekki tekist svona vel án þeirra og er ég innilega þakklát fyrir þeirra framlag.
Stilling mín stóð sig einnig vel og getum við sagt að hún hafi fengið margar ''smellur'' fyrir sitt framlag!
Með bestu kveðju,
Linda Karen
12.04.2011 13:45
Kynning á Beisli án Méla og Smelluþjálfun
Kynning á Beisli án Méla og smelluþjálfun
fyrir hesta verður haldin miðvikudaginn
13. apríl nk. í reiðhöll Sörla.
Kynningin hefst kl. 20 og stendur yfir í um eina og
hálfa klukkustund.
Virkni beislisins verður sýnd í reið og verða orsakir
hegðunarvandamála, öndunarerfiðleika og kláða í
andliti ræddar.
Nánar um beislið hér: www.beisli.net
Með smelluþjálfun er námshraði hestsins aukinn
til muna þar sem aðferðin gerir knapanum kleift að
segja hestinum nákvæmlega hvaða hegðun það er
sem knapinn vill sjá hjá honum. Smelluþjálfun fær
hestinn til að sækjast eftir því framkvæma þessa
hegðun og er aðferðin því mjög áhrifarík viðbót í
verkfærakassann.
Kenndir verða grunnþættir smelluþjálfunar og
hvernig má nota aðferðina til að leysa hin ýmsu
vandamál sem og til að hraða árangri við þjálfun
og tamningu.
Með bestu kveðju,
31.03.2011 21:41
Stilling föst í efstu hryggjarliðum
Stilling og ég 2009.
Stilling hefur alltaf verið að skjóta út vinstri bóg síðan ég byrjaði að temja hana. Hef ég alltaf talið að það hafi verið vegna misstyrks. Í vetur hef ég verið að þjálfa hana sérstaklega hvað styrkingu hliðanna varðar - en sama hvað þá var þetta bógavesen og að verja vinstri hliðina (með því að færa vinstri afturfót sífellt undan þunga), ekki að hverfa.
Mig fór að gruna að eitthvað væri ekki með felldu svo ég ákvað að hafa samband við hana Susanne Braun dýralækni sem er lærður hestahnykkjari. Hún hefur komið til mín áður með góðum árangri en þá var það til að hnykkja hana Spólu sem var með gamalt vandamál vegna slyss.
Susi með einn brúnan (er aðeins of slöpp með myndavélina þessa dagana...).
Susi kom á mánudaginn og sá fljótlega hvað vandamálið var. Efstu hryggjarliðir í hálsi voru fastir sem gerði það að verkum að hryssan beitti hálsvöðvum vinstra megin ekki rétt og var því sífellt að skjóta út bóg þar sem hún sveigði hálsinn ekki rétt. Stilling tók hnykkingunni mjög vel og breyttist greinilega eftir hana, sveigir hálsinn á réttan hátt.
Susi sagði að hún væri bólgin í rangt notuðum vöðvum enda mikið álag á þeim og að þeir vöðvar sem ættu að vera að vinna sitt verk væru mjög veikir. Hún sagði að Stilling hefði þróað þetta með sér fyrir löngu síðan og þyrfti að hjálpa henni að nota hálsvöðvana rétt, þ.e. fá styrk í þá á ný. Hún var t.d. alltaf þyngri á tauminn vinstra megin, þ.e. hálsvöðvarnir áttu erfitt með að halda höfðinu uppi svo vel væri vegna þessa vandamáls. Susi þarf amk. að koma í eitt skipti í viðbót til að fullur árangur náist í þessu tilfelli.
Susi var ekki viss um hvort hryssan yrði tilbúin fyrir vorsýningarnar hvað hálsvöðvana varðaði og er ég hálfpartinn búin að ákveða að færa sýninguna á Stillingu fram í ágúst svo við stöllur getum andað rólega í 'sjúkraþjálfuninni'.
Mæli með því að fá að Susi í heimsókn ef einhver undarleg líkamleg vandamál láta á sér kræla.
Síminn hjá henni er 895-5025.
Ég og Heimir á góðum degi.
Styttist í fræðsluerindið
Nú fer heldur betur að styttast í fræðsluerindið sem ég mun halda í reiðhöll Sörla þann 13. apríl nk. um smelluþjálfun og Beisli án Méla (www.beisli.net).
Beislið hefur verið að reynast vel og sýndir verða nokkrir hestar í reið til að sýna virkni þess. Ég vona að Stilling verði búin að ná einhverjum bata en hún á að vera aðalsýningarhrossið enn sem komið er.
Ég mun fara yfir hvernig hestinum er kennd smelluþjálfun og hvernig má m.a. nota hana til að leysa vandamál á fljótlegan hátt, en aðferðin er ótrúlega fljótvirk og skemmtileg fyrir mann og hest.
Nokkrir hlutir sem verður m.a. farið yfir
(nánari uppl. þegar nær dregur hvað farið verður í):
* Standa kyrr þegar farið er á bak
* Komast yfir hræðslu við staði/hluti, t.d. hræðsla við kerru.
* Komast yfir eyrnafælni
* Flýta fyrir gangsetningu
* Losna við styggð í haga og gerði
* Fá hestinn kurteisan (losna við nag) og fl.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
05.03.2011 22:16
Nýtt viðhorf - nýr hestur
Stilling sveitt eftir skemmtilegan reiðtúr um daginn
Það hafa góðir hlutir gerst í minni hestamennsku þennan veturinn sem eru m.a. afleiðingar þess hversu vel ég varði haustinu í bókalestur. Mig langar að segja örlítið frá því hvernig hryssan mín breyttist úr því að vera dauf og þunglynd yfir í að vera frísk og áhugasöm við það eitt að ég breytti viðhorfi mínu.
Fróðlegar bækur
Ég keypti mér nokkrar bækur af Amazon í haust sem fjölluðu m.a. um heilun fyrir hesta, hvernig á að tengjast hestum og öðrum dýrum með innsæinu og fleira tengt andlegu hliðinni í samskiptum við hesta.
Bækurnar lýstu hestum (og dýrum almennt) sem stórkostlegum verum sem eru í mun meiri tengslum við sjálft sig og alheiminn heldur en mannkynið sem gefur þeim eiginleika til að heila okkur á okkar leið til uppljómunar (til innri friðar, sannrar hamingju og tengsla við alheiminn - þar sem þau eru). Þessi hugmyndafræði heillaði mig mjög.
Ein setning vakti áhuga minn sérstaklega: Hestur er persóna sem lítur út eins og hestur.
Áhugaverður Hempfling
Einnig hreifst ég af viðhorfi hins danska Klaus Hempfling sem er þekktur í Evrópu fyrir að tengjast hestum á einstaklega djúpan hátt - vinnur með andlegu hliðina.
Hann talar sérstaklega mikið um leiðtogahlutverkið og að sannur leiðtogi sé m.a. sá sem hefur fulla stjórn á sjálfum sér, sé á sífelldri leið sjálfsþroska og hafi gífurlegan andlegan styrk - sem og innri ró.
Ég ákvað að reyna þessa hugmyndafræði, nýtt viðhorf, á Stillingu, sem var í fyrravetur einn þunglyndasti hestur sem ég hef kynnst í minni hestamennsku.
Hempfling telur að betra sé að vinna með hestinn mest á víðavangi en í gerðum þar sem rekið er sífellt á eftir honum. Betra sé að vinna upp traust á víðavangi svo andi hestsins tapist ekki. Ég var mikið með Stillingu í hringgerði. Það var án vafa einn af þeim þáttum sem hafði neikvæð áhrif á hennar andlegu líðan.
Dauf í dálkinn
Í fyrra var Stilling mjög þunglyndur hestur. Það var ekkert blik í augum hennar og hegðun hennar minnti á vonlausan þræl frekar en ungan og frískan hest.
Ég áttaði mig á því í haust að þessi líðan hryssunnar var mér að kenna því að í hvert skipti sem ég vann með hana (og hitti hana) streymdu sífellt til hennar neikvæðar hugsanir.
Hugsanir um að hún væri ekki nógu góð og að hún væri mér vonbrigði. Augu hennar voru gersamlega dauð og áhuginn fyrir umhverfinu enginn. Stilling hefur því örugglega skynjað þessar tilfinningar mínar gagnvart henni enda skynja dýrin okkur á mun dýpri hátt en almennt er talið skv. bókunum góðu.
U-beygja
Þegar ég byrjaði að vinna með Stillingu í vetur byrjaði ég á að segja henni einlæglega í huganum á hverjum degi hvað mér þætti vænt um hana og hvað hún væri frábær (og geri enn). Ég fór að sjá hana sem persónu í stað þess að sjá aðeins einhvern grip sem ég setti mér markmið með, hryssan var ekki hlutur. Ég spjallaði mikið við hana í huganum af mikilli jákvæðni hvenær sem tækifæri gafst, forðaðist gerðin í lengstu lög og reyndi að hafa hlutina eins skemmtilega fyrir hana og mögulegt var. Reyndi að stuðla að hamingju hennar sem mest ég mátti.
Augun í hryssunni breyttust smátt og smátt við þetta, þau tóku að glitra á ný, full af áhuga og lífskrafti.
Nýr hestur
Dag frá degi breyttist Stilling til hins betra. Hún fór skyndilega að sýna mikinn persónuleika sem ég hafði aldrei séð hjá henni áður. Hún vildi leggja sig fram og varð alltaf glaðari með hverjum reiðtúr - fór að verða áhugasamari og námsfúsari.
Hestur sem eitt sinn var svo latur varð framsæknari með hverjum deginum, fjörugri, líflegri - vakandi og frjáls. Hryssan er full áhuga hverja þá leið sem við leggjum sem er eitthvað alveg nýtt.
Ég er að ná að endurvekja hinn 'dauða hest' (sem ég 'deyddi' andlega með minni framkomu og þjálfunaraðferð) - með því að breyta minni framkomu, viðhorfi og þjálfunaraðferð m.a. með því að sjá hana sem persónu. Það breyttist ótrúlega mikið hjá mér sem knapa við þessa viðhorfsbreytingu - maður ber meiri virðingu fyrir lífi hestsins og tengist honum dýpri böndum en nokkru sinni fyrr.
Ég er farin að hleypa hryssunni oftar og lofa henni reglulega að ''vera hestur'' í reiðtúrunum - lofa henni að vera hún sjálf og finna fyrir hlaupafrelsinu inná milli krefjandi æfinga. Við erum báðar sammála um að það er skemmtilegasti partur reiðtúrsins þegar hún er bara hestur og ég er bara maður - báðar með engin markmið önnur en þau að njóta lífsins.
Mikilvægt að fara glaður heim
Í hverjum reiðtúr gerist eitthvað gott og hugsa ég alltaf um það góða í stað þess að einblína á það sem betur má fara. Góðir hlutir gerast hægt. Þannig fer maður alltaf glaður heim sem er mikilvægt upp á jákvæðnina að gera. Hesturinn finnur hvenær maður er glaður og hvenær ekki - og ég vil að hryssan finni að ég sé alltaf ánægð með frammistöðu hennar - sem hefur orsakað það að henni finnst enn skemmtilegra að vera með mér.
Ég er að þroskast mikið sem reiðmaður samhliða vexti hryssunnar sem er sannarlega ánægjulegt - sérstaklega af því okkur báðum þykir svo gaman að læra af hvor annarri.
Skemmtilegt atvik
Við Stilling lentum í dálitlu í Heimsenda fyrir nokkru sem sannaði fyrir mér að hin nýja hugmyndafræði væri að hafa góð áhrif. Við vorum á feti í þónokkru roki. Bráðlega komum við að stórum ruslabing við vegkant. Sveiflaðist þar langur grár plastdúkur í átt að reiðveginum. Stilling stífnaði upp og tók að skjálfa eins og hrísla. Ég fór af baki og ætlaði að sýna henni skrýmslið því hún vildi alls ekki fara nær, hef sjaldan séð hryssuna svona hrædda.
Við fórum nær en en skyndilega reif hún tauminn lausan og rauk á harðastökki heimleiðis. Stilling svarar nafninu sínu í gerðinu og kemur þegar kallað er (kennt með smelluþjálfun) og mér fannst allt í einu ekkert eðlilegra á þessu augnabliki en að kalla á hana.
Stilling!
Kallaði ég. Um leið hægði hryssan á ferðinni, brokkaði sperrt og hallaði sér sitt á hvað til hliðanna til að horfa á mig. Ég kallaði aftur Stilling! og rölti í áttina á eftir henni. Ég hugsaði að nú þyrfti ég að labba heim því hryssan ætti sko eftir að taka straujið enda með tvær fullgildar ástæður - ógnvekjandi rusl og að losna við að bera mig um allar trissur. Samt grunaði mig að ég myndi nú ekki fara einsömul heim.
Stilling! kallaði ég aftur. Hryssan snarstöðvaði skyndilega, snéri sér þvert á reiðveginn og horfði á mig. Hún leit svo áfram upp eftir reiðveginum heim og leit svo aftur á mig, greinilega að hugsa sig um. Ég stoppaði og horfði á hana. Stilling komdu, kallaði ég rólega. Hún kom. Hún labbaði í áttina að mér og blaktandi ruslinu og setti höfuðið í hendur mínar.
Hryssan valdi mig þrátt fyrir ærnar ástæður til að hlaupa heim. Það þótti mér ákaflega vænt um og sannaði fyrir mér að nýja viðhorfið væri að gera okkur gott. Með berrassaðan hausinn
Ég er nú farin að teyma hana um allt með ól um
hálsinn eins og hann Hempfling gerir með sína
hesta - með berrassaðann hausinn. Við
hlaupum stundum út um allt svona berrassaðar á
litlu túni fyrir neðan hesthúsið og það hefur einnig
aukið gleðitilfinninguna hjá henni - en aðallega
dýpkað traustið á milli okkar.
Hestur er persóna sem lítur út eins og hestur... mér líst heldur betur vel á það mottó.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
09.02.2011 18:21
Stilling hlaut gott byggingarmat
Stilling sperrt á hlaðinu á Kjartansstöðum í sumar.
Ég fór með Stillingu í byggingarmat hjá Hrossaræktarfélagi Andvara um síðustu helgi, en félagið hélt sérstakan ræktunardag þar sem m.a. var boðið uppá forskoðun kynbótahrossa. Frábært framtak. Ég var nú svolítið óviss að fara með hryssuna því ég vissi ekki alveg hvar hún myndi lenda og var eiginlega ekkert alltof spennt að vita ef niðurstaðan yrði miður. Ákvað þó að slá til þar sem Hrafnhildur vinkona var ekkert á því að sleppa mér við að mæta.
Myndarleg Stilling
Ég var nú varla að nenna að vakna kl 7:30 á laugardagsmorgninum og fara út til að skafa bílinn en drattaðist þó af stað. Ég fór síðan með hryssuna samferða þeim Hrafnhildi og Bjarka sem fóru með hross í mat til að sjá stöðuna fyrir vorið (www.klarhestar.com). Fljótlega myndaðist biðröð inn í reiðhöllina og heppin vorum við að bíða með hrossin í svona góðu veðri þó kalt væri.
Fljótlega kom að okkur Stillingu enda þaulvanur maður við störf. Kristinn Hugason, fyrrverandi ráðunautur tók á móti okkur hress í bragði. Ég stillti hryssunni upp en það kunni hún vel frá í fyrravor. Kristinn varð strax mjög hrifinn af Stillingu og þótti hún vera mjög myndarleg. Hún var mæld lítillega og reyndist m.a. vera 1,41 á herðakamb.
Kristinn skoðaði hana í bak og fyrir og hélt áfram að hrósa henni (og ég að þakka fyrir) á meðan hann hugsaði hvaða tölur myndu líklega falla henni í skaut í vor. Hann taldi tölurnar upp jafnóðum og ritari skráði niður. Allar voru þær jafnar og góðar og vildi ég næstum halda að ég væri enn heima í rúminu en ekki í raunveruleikanum því allt hljómaði vel, utan réttleikaeinkunnar sem ég vissi að yrði í lakari kantinum, þ.e. hryssan fléttar að framan.
Stilling og ég sumarið 2009.
Góndi bara
Þegar það kom að frampartseinkunn hrósaði hann hálsinum og taldi hann hana hafa mjög góðan frampart, fengi 8,5-9,0. Hún er rökuð upp í kverk og gæti það hafa ýkt útlit hálsins að hans mati en eftir að hafa þreifað hann nokkrum sinnum kallaði hann upp - 9,0.
Ég góndi nú bara á Hrafnhildi sem stóð í dyragættinni því við þessu hafði ég ekki búist. Mér fannst ekkert mál að meta Spólu hér um árið og var ansi nálægt þeim dómi en það var einhvern veginn óræðara með Stillingu því ég vildi ekki gera mér of miklar vonir.
Eftir dóminn fékk ég útprentað yfirlit yfir byggingarmat Stillingar.
Byggingarmat:
Dómari: Kristinn Hugason
| Höfuð : Háls, herðar og bógar : Bak og lend : Samræmi : Fótagerð : Réttleiki : Hófar : Prúðleiki: Aðaleinkunn: 8,33 |
8,5 9,0 8,0 8,5 8,0 7,0 8,0 8,5 |
Kristinn taldi að hún gæti hækkað úr 8,0 í 8,5 fyrir fótagerð, en ef hann hefði metið það svo þarna hefði hún fengið ca. 8,40 í byggingarmat. Það verður gaman að sjá hvað skvísan fær síðan í vor, það verður eitthvað á þessu bili að vonum.
Stilling 2008... verð að taka fleiri myndir...
Ef þetta stenst nokkurn veginn eru þetta í raun stórkostlegar fréttir fyrir mig sem ræktanda, þ.e. að eiga ræktunarhryssu með svo ljómandi niðurstöður - en auðvitað kemst ekki lokadómur á þetta fyrr en í vor og verður gaman að sjá hvernig fer.
Ég og Stilling 2008.
8,20 inná LM'11
Einkunnalágmörk inn á LM'11 fyrir hryssur 7 vetra og eldri er 8,20. Það þýðir að hryssan þurfi mögulega ekki yfirnáttúrulega háa hæfileikaeinkunn til að komast hreinlega inná landsmótið - þ.e. ef byggingarmatið heldur sér nokkurn veginn. Bara gaman að því.
Ég veit nú nokkurn veginn hvar hún stendur hæfileikalega og tel að hún eigi heima á landsmóti með réttri meðhöndlun - og nú er að þjálfa. Það gengur vel með hryssuna og höldum við ótrauðar áfram í átt að vorinu - og að sjálfsögðu án méla.
Eftir dóminn fer skvísan síðan undir höfðingjann og gæðinginn Tývar frá Kjartansstöðum og get ég varla beðið eftir því afkvæmi - held að ég hitti heldur betur á góða blöndu þar.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
21.01.2011 00:00
Sannkallað listaverk
Ég og gæðingurinn Tývar frá Kjartansstöðum.
Ég er mjög tilfinninganæm manneskja og elska þegar ég heillast svo af einhverju að það er eins og tíminn standi kyrr. Í mínum huga er hrossarækt list og ættu hrossin að hrífa áhorfendur með sér líkt og stórkostleg listaverk gera - færa áhorfandann (sem og knapann) inn í stórkostleika augnabliksins. Það er stórkostleg upplifun þegar hestur í braut á hug manns allan. Það er eins og fótunum sé kippt undan manni í einskærri undrun (og ekki síður ef maður situr hestinn, það er stórkostleg upplifun).
Af öllum þeim hestum sem ég hef séð á minni stuttu ævi hefur þetta aðeins hent mig einu sinni í brekkunni. Ef ég hefði verið á lífi þegar Hrímnir frá Hrafnagili sigraði LM'82 eða ef ég hefði séð Náttfara frá Ytra-Dalsgerði eða Ternu frá Kirkjubæ undir með berum augum - það hefðu sannarlega verið ógleymanleg augnablik.
Gæðingurinn Töfri heima á Kjartansstöðum.
Hugsað með hjartanu
Allt landsmótið 2002, þá 17 ára, beið ég eftir hrossi sem gæti hrifið mig algerlega inn í augnablikið og lagt mér línurnar - kýlt mig í hjartað og sagt mér að það væri málið.
Sannir listamenn hugsa með hjartanu - og því ákvað ég að treysta alfarið á það við leit mína að því sem myndi henta mér sem ræktanda í framtíðinni. (Þessi hegðan hefur bara aukist með árunum - nú reyni ég hreinlega að hugsa með hjartanu og nota hausinn mest til að reikna. Mæli með því ;)
Ég átti reyndar enga hryssu en ég vissi að það myndi koma síðar (gerðist þá um haustið - keypti Stillingu veturgamla). Allt mótið horfði ég á hross sem höfðu ættlínur sem höfðuðu til mín en ekkert þeirra náði sérstaklega til mín.
Ég vildi móta mína ræktunarstefnu eftir þetta landsmót og beið eftir hestinum sem myndi heilla mig, hestinum sem myndi sýna mér í lifanda líki það sem ég vildi rækta og stefna að.
Baðaður sólargeislum
Þegar ég var búin að rölta í sífellu á milli kynbótavallarins og keppnisvallarins einn daginn var sólu tekið að halla. Hún varpaði fallegum rauðleitum bjarma yfir svæðið. Ég lötraði upp á kynbótavöll í þeim tilgangi að kíkja á nokkra stóðhesta sem þá áttu að mæta í braut.
Spenntust var ég fyrir einum þeirra sem ég hafði aðeins séð á mynd og vildi ég ekki missa af þeim hesti. Eftir að hafa fylgst með þónokkrum nöfnum heyrði ég nafn þessa hests kallað og sá hann birtast í fjarska. Ég pírði augun þar sem ég stóð við brautarendann og sá hestinn koma á hægu tölti í áttina að mér.
Það var eins og hann væri svífandi, svo létt og lipur var fóthreyfingin. Sólargeislarnir sindruðu á dökkum feldinum og hann flaug hverja ferðina á fætur annarri svo einstaklega fallega og svo áreynslulaust að ég hafði aldrei á ævinni séð annað eins.
Hesturinn færði mig algerlega inn í núið, burt frá öllum hugsunum um fortíð og framtíð sem angrar okkur mennina svo mjög - hann færði mig inn í augnablikið með sér. Þvílík upplifun. Tíminn stóð algerlega kyrr og ég fékk kökk í hálsinn - en um leið fannst mér eins og einhver hefði slegið mig snöggan kinnhest.
Sannkallað listaverk
Þessi hestur var Töfri frá Kjartansstöðum með Jóhann Skúlason á bakinu og þarna flugu þeir félagar saman hverja ferðina á fætur annarri.
Listaverk - það er það sem við hrossaræktendur eigum ævinlega að leitast við að rækta - hross sem færa okkur inn í augnablikið, hvort sem við horfum á þau eða sitjum þau.
Ég var algerlega gáttuð og aðeins andstutt þegar ég hrökklaðist frá brautinni eftir þessa sýningu. Segja má að handarfarið eftir þennan ósýnilega kinnhest sem ég hlaut þetta kvöld vari enn á andliti mínu því ræktunarstefnan sem ég setti mér eftir sýninguna hefur ekki breyst í áranna rás og verður ekki haggað.
Mín ræktun er nú æði stutt á veg komin og nær líklega ekki hámarki fyrr en í kringum fimmtugt en mikilvægt er að setja sér skýrar línur frá upphafi að mínu mati - og hafa listræna upplifun fyrir áhorfanda og knapa á meðal markmiðanna.
Margt er líkt með bræðrum
Töfri þessi á eldri bróður að móðurinni til sem sannarlega býr að þessum sama eiginleika að færa mann inn í augnablikið.
Ég fór eitt sinn í reiðtúr 2008 að vetrarlagi með Þorvaldi Sveinssyni ræktanda á Kjartansstöðum - sem að mínu mati er alger listamaður þegar það kemur að hrossarækt (er að reyna að læra listina af honum í leyni).
Hann sat stóðhestinn Tývar og var ég á góðum Keilissyni. Sá rauði greip strax augað frá húsi. Klárinn var sérlega næmur og fimur undir knapa sínum, sporið ákaflega létt og leikandi. Hann var viljugur áfram en einstaklega þjáll um leið. Hann sveif yfir snjónum á brokkinu með miklum fótaburði. Töltið var einstaklega mjúkt, hreyfingarmikið og glæsilegt á að líta. Það var rétt eins og hesturinn hefði ekki fyrir þessu - og knapinn haggaðist ekki í hnakknum.
Þótt Tývar væri ekki í neinu formi leit hann út eins og 5 vetra foli undir ræktanda sínum, stinnur og fallegur með mikla útgeislun. Klárinn heillaði mig gersamlega þetta vetrarsíðdegi þar sem hann brokkaði og tölti svo fagurlega í snjónum að alger unun var á að líta. Einstakur gæðingur.
Kom til mín í draumi
Þessi reiðtúr var sannarlega staðfesting á að ég hafi valið réttan hest vorið 2008 - en nokkru áður en ég hélt Spólu undir hann hafði ég hitt hestinn fyrir í draumi. Þar endaði ég á að spyrja hann hvort hann væri hesturinn sem ég væri að leita að þar sem ég stóð fyrir framan stíuna hans í hesthúsi Sigga Matt.
Þá hætti hann öllum stóðhestalátum sem hann hafði áður verið svo upptekinn af - kom alveg upp að mér, hringaði makkann og horfði á mig. Það síðasta sem ég sá í þeim draumi voru augun og þau voru svo ákveðin að ég hringdi á Kjartansstaði með det samme til að fá að halda undir hann og sé ekki eftir því - og endurtek leikinn með Stillingu í sumar.
Terna frá Kirkjubæ, sannkölluð gæðingamóðir.
Þeir Ternusynir eiga augljóslega auðvelt með að heilla mig upp úr skónum og þykir mér leitt að hafa ekki hitt Ternu sjálfa áður en hún var felld þrítug að aldri árið 2004. Það hefði verið guðdómleg stund enda fyrirfinnst varla meira ''fan'' að þessari ágætu hryssu þó víða væri leitað - en hún var stórkostleg kynbótahryssa sem á engan sinn líka.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
04.01.2011 13:49
Fræðslusýning 13. apríl nk.
Heimir og ég á fyrstu kynningunni á smelluþjálfun fyrir hesta á landsmóti 2008.
Gleðilegt nýtt ár!
Þann 13. apríl nk. verð ég með fræðslusýningu hjá hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði um smelluþjálfun og Beisli án Méla. Þykir mér mikill heiður að vera boðin til að flytja þetta erindi og er ég afar þakklát Sörlamönnum fyrir boðið. Kynningin mun fara fram í reiðhöll Sörla.
Að öllum líkindum verður aðgangur opinn öllum eins og tíðkast hefur hjá flestum hestamannafélögum - þannig að áhugasamir geta nýtt sér tækifærið og kynnt sér þessa ágætu þjálfunaraðferð sem og frábæran beislabúnað þessa ágætu kvöldstund.
www.sorli.is
Stilling þarf að læra ótal atriði til að kynna virkni smelluþjálfunarinnar
Ég verð aðeins með Stillingu inni í vetur svo álagið verður nokkuð á hana en hún þarf bæði að vera undirbúin fyrir kynbótadóm sem og þessa kynningu - þannig að hún þarf að læra þónokkrar æfingar, bæði hagnýtar og til gamans svo kynningin verði sem skemmtilegust.
Sörlamenn ætla að vera svo góðir að ferja hana fram og til baka fyrir mig frá Andvara á fræðslukvöldinu sem ég er mjög þakklát fyrir og gerir hlutina sannarlega einfaldari fyrir mig varðandi að koma hryssunni á svæðið.
Stilling fær veglegt þjálfunarprógram þennan veturinn!
Ég ætla að undirbúa erindið afar vel sem og hryssuna svo þetta ætti að verða ánægjuleg upplifun fyrir þá sem vilja kynna sér hinn ágæta beislabúnað Beisli án Méla og þessa áhrifaríku þjálfunaraðferð sem er sannarlega góð viðbót í ''verkfæratöskuna''.
Þegar gengið lagast verður vonandi hægt að hafa enn hagstæðara verð á Beisli án Méla. Krónublessunin mun lagast og verða okkar helsti styrkur (vera áfram sjálfstæð þjóð með eigin gjaldmiðil í stað þess að fara í bandalag með Evrópuþjóðum, deila með þeim sameiginlegum gjaldmiðli og snúa aftur til heimastjórnarinnar 1918 - ef evran hrynur hrynja öll löndin eins og spilaborg...óæskilegt að mínu mati... smá anti ESB áróður hér, afsakið það!) Fannst þetta besta atriðið í skaupinu - þegar krakkarnir voru að laga krónuna ;)
Beislið hefur hefur verið að reynast vel hérlendis miðað við öll bréfin sem ég hef fengið frá fólki sem vill fá að þakka fyrir sig og tilkynna breytingar á hestunum sínum - sem er sannarlega ánægjulegast af öllu í sambandi við söluna á þeim grip og allur tilgangurinn.
Ekki er hægt að segja að hagnaður sé af þessari sölu þar sem ég vil halda verðinu eins langt niðri og mögulegt er til að hafa beislið sem aðgengilegast - en einn daginn mun krónan rísa úr öskustónni og þá verður hægt að hafa enn betra verð. Go krónan!
Einnig er heimasíðan www.smelluthjalfun.net í vinnslu en þar verður hægt að kynna sér þessa aðferð nánar og læra að beita henni en hún er bæði einföld í notkun og áhrifarík.
Heimasíða Beislis án Méla er enn í fullu fjöri: www.beisli.net
Ég og Spóla
Þegar ég sótti Stillingu þann 28. desember var Spóla einnig sótt í leiðinni af nýju eigendunum svo það varð svona formleg kveðjustund hjá okkur vinkonunum. Hún á eftir að hafa það gott á nýja staðnum og það verður gaman að frétta af folaldinu sem hún gengur með en það ætti að koma um mánaðarmótin maí/júní.
Stilling er því komin á hús og verður járnuð síðdegis svo undirbúningur hefst formlega í dag... klukkan tifar og nóg af verkefnum fyrir hendi svo betra er að láta hendur standa fram úr ermum.
Hafið það sem best!
Með bestu kveðju,
Linda Karen
26.12.2010 23:47
Gleðilega hátíð!
Funi og einhver skrýtinn haus..
Gleðilega hátíð! Nú fer heldur betur að styttast í að hestatímabilið hefjist og útreiðar verði daglegt brauð en ekki aðeins fjarlægur draumur.
Ég gerði mér ferð á Kjartansstaði rétt fyrir jól til að kíkja á hestana mína og sjá endurbæturnar á reiðskemmunni sem unnið hefur verið að í haust. Reiðskemman er hin glæsilegasta og verður frábær vinnuaðstaða fyrir tamningar þar í vetur.
Ég hlakka mikið til sumarsins enda rennir mig í grun að Kjartansstaðir verði með ''come back'' enda húsið þeirra fullt af stórefnilegum hrossum og sumum afar sérstökum.
Funi jr. vissi vel af kossahefðinni og var ekki lengi að smella einum á sína.
Hrafnhildur vinkona kom með og smellti af nokkrum myndum. Þegar við litum á stóðið kom Funi jr. strax á móti okkur sem mér þótti nokkuð skrýtið enda hann ekkert sérlega gæfur í minningunni, var alltaf fremur feiminn strákurinn. Hann er bara frekar stór og myndarlegur sá stutti, þroskast greinilega vel. Eldey leit einnig mjög vel út sem og öll hin hrossin mín, öll glöð og pattaraleg.
Spóla sumarið 2010.
Funi var tekinn frá Spólu þennan dag þar sem nýi eigandi hennar vill fá að færa hana yfir í haga með sínum hrossum. Funi verður því inni í vetur. Það á eftir að fara mjög vel um hana Spólu á nýja staðnum og það verður gaman að fá fréttir af folaldinu sem hún á eftir að kasta næsta vor. Hún er fylfull við Keim frá Kjartansstöðum sem er mikið efni undan Krafti frá Bringu og Tryggveigu frá Kjartansstöðum (undan Víkingi frá Voðmúlastöðum og Ternu).
Spólu verður sárt saknað enda einstakur karakter og gæðingur að mínu mati. Hún gat auðveldlega sveiflað framfótunum kröftuglega í vinkil á löturhægu tölti, en hún átti hinsvegar erfitt með að bera sig rétt vegna þeirra áhrifa sem slysið hafði á bakið á henni. Hún á hvert bein í mér þessi hryssa enda áttum við margar góðar stundir saman. Kannski að nýi eigandinn endi bara í einhverri beinatínslu, það er góð spurning!
Spóla og ég eitthvað að grínast í hólfinu hjá Keim 2010
Hin svokallaða ''Stilling''
Það kom stundum fyrir að fólk væri að spyrja eftir Stillingu í den og nokkrir föluðust eftir henni. Enginn hafði sérstakan áhuga á Spólu enda Stilling svo stór og stæðileg við hliðina á henni. Það kom hinsvegar reglulega fyrir að hinir áhugasömu héldu að Spóla væri Stilling þegar ég var að láta hana hlaupa í taumhring eða frjálsa undir sjálfri sér (þar sem ég reið henni ekki mikið út af afleiðingum meiðslanna og þurfti hún mikla vinnu undir sjálfri sér til að lagast sem hún og gerði en þó aldrei alveg).
Eitt sinn voru mér boðnir 3 hestar í staðinn fyrir hina svokölluðu ''Stillingu'' sem hljóp á vígalegu brokki í gerðinu fyrir utan hesthúsið. Sá hinn sami varð nú svolítið hissa þegar það kom í ljós að þetta væri nú hún Spóla!
Hubertine nýji eigandinn hennar á eftir að hugsa vel um hana og lofar mér að fylgjast með kerlunni. Ég veit að hún á eftir að fá frábær afkvæmi undan Spólu en ég er afskaplega ánægð með mín, frábært geðslag í þeim báðum og bæði búa þau yfir góðum fótaburði.
Litli loðboltinn Funi með Spólu á bak við sig og vinkonu sína undan Möller frá Blesastöðum og Tjáningu Ternudóttur frá Kjartansstöðum.
Efnilegur Funi
Funi var tekinn á hús og létum við hann göslast aðeins um í reiðskemmunni til að sjá hvernig hann er hreyfingarlega. Í sumar var það bara tölt eða skeiðsprettur en nú kaus hann brokkið og það var sannarlega eitthvað sem heillaði augað - léttar og svifmiklar hreyfingar, fótaburður... og hugsanlega afturfótahreyfingar, en Sóti faðir hans hafði sannarlega nóg af þeim. Amk. kreppti folinn vel hné og hækil en maður veit aldrei fyrr en hann verður taminn hvernig hann endanlega hreyfir sig hugsa ég.
Drengurinn hafði bara í fullu tré við mörg hin glæsilegu folöld sem ég hef séð á Kjartansstöðum - sem er eðlilegt enda finnst líklega ekki hestur með meira Kjartansstaðablóð en Sóti faðir hans. Ég er alla vega mjög ánægð með hann, alveg kattliðugur strákurinn. Hann mun vafalaust bera nafn forvera síns afar vel.
Funi í hólfinu hjá Keim í sumar, sperrtur strákurinn.
Þorvaldi leist einnig vel á hann og þykir hann minna mjög á föður sinn þó hálsbyggingin gæti verið önnur. Spurning hvort hans afar loðni háls feli hálsbygginguna en hann var frekar spengilegur í sumar þegar hann reisti sig - kemur í ljós næsta vor. Hann er líka frekar fríður strákurinn. Funi virðist líkjast móður sinni heldur lítið sem var í mínum huga viðbúið þar sem Sóti er 3-föld Terna og hans erfðaefni mjög sterkt gagnvart erfðaefni Spólu.
Ég er með það opið að halda honum gröðum eftir að hafa séð hreyfingar hans í vikunni - en það fer eftir því hvernig hann þróast fram á vorið og hvernig Sóta gengur í útlandinu. Einnig verður mikilvægt að hafa Þorvald með í ráðum og ekki síður innsæið en það hefur teymt mig niður margar götur þar sem áfangastaðurinn hefur orðið til mikillar gæfu. Sjáum hvað setur.
Sóti í vetrarhamnum í Þýskalandi með hrímað fax.
Alexa Maxrath er eigandi Sóta og fór hún með hann á ungfolasýningu í haust þar sem hann bar sigur úr býtum. Hún stefnir á að fara með hann í kynbótadóm en hann verður 5 vetra í vor og segir hún hann auðveldan í tamningu, geðgóðan og töltið vel opið.
Sóti frá Kjartansstöðum, 2 vetra. Hann sparar aldrei fótaburðinn þessi.
Hún ætlar hugsanlega að senda hann til Jolly Schrenk sem er hið besta mál og gaman verður að fylgjast með þessum hesti enda sjaldan sem maður sér svo hreyfiglaðan hest eins og Sóta. Það var hrein unun að fylgjast með honum undir sjálfum sér þegar ég sá hann fyrst aðeins 2 vetra gamlan og hann hefur lítið gefið eftir með árunum.
Stilling ''hin bleika''.
Ég varð auðvitað að máta hina nýuppgerðu reiðskemmu sem og hið sérkennilega beisli sem ég keypti í haust. Stilling varð auðvitað fyrir valinu og tölti hún lipurlega í skemmunni með hið skærbleika beisli og skemmti ég mér afar vel við að sitja þessa stóru prinsessu á ný.
Hrafnhildi leist nú ekkert á blikuna fyrst enda er þessi litur vægast sagt ''æpandi'' en eftir nokkra hringi fór nú álit hennar að breytast. Það endaði með því að líklega yrði Stilling bara ferlega töff í Andvara í vetur með beislið. Já er það ekki bara? ;)
Með jólakveðju,
Linda Karen
PS. Minni á síðuna www.klarhestar.com sem er vefsíða Hrafnhildar og Bjarka kærasta hennar en þau eru m.a. með hross til sölu og uppfæra síðuna reglulega.